Persónuvernd

Persónuvernd á gonguskor.is

Við hjá Hike ehf., tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær upplýsingar sem koma í gegnum vefinn gonguskor.is í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hér fyrir neðan förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum, með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.

Hvaða upplýsingar skráum við og í hvaða tilgangi

Samskiptaupplýsingar:

Þegar þú átt í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðuna eða tölvupóst, þá skráum við persónuupplýsingar eins og nafn og netfang auk upplýsinga um samskipti okkar.  Það gerum við svo við getum haft samband við þig, stofnað til viðskipta og veitt umbeðna þjónustu.

Vefurinn gonguskor.is notar ekki vafrakökur og safnar engum persónugreinanlegum gögnum sjálfkrafa.

Hvaða heimildir höfum við til að vinna með upplýsingarnar?

Við höfum samþykki frá þér. Þegar þú sendir upplýsingar í gegnum vefinn þá gefur þú leyfi fyrir því að upplýsingarnar séu notaðar í þeim tilgangi sem þeirra er aflað.

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Sé um að ræða upplýsingar sem falla undir bókhaldslög, eru þær varðveittar í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs eins og reglur kveða á um.

Miðlun til þriðja aðila

Við deilum persónuupplýsingum þínum ekki með neinum utan starfsmanna Hike og þjónustuveitenda á okkar vegum.

Þinn réttur

Samkvæmt 20. grein laga áttu rétt til leiðréttingar, eyðingar og flutnings eigin gagna. Ef þú vilt nýta þér þau réttindi eða hefur spurningar varðandi persónuvernd á gonguskor.is  hafðu þá endilega samband á [email protected]

Persónuvernd barna

Við skráum engar persónuupplýsingar um börn yngri en 16 ára.

Breytingar

Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu okkar.

Persónuverndarstefna þessi tók gildi 15. júlí 2018.